Skólabragur
Skólabragur mótast af þeim samskiptum sem viðgangast í skólanum. Þannig er skólabragur ólíkur milli skóla en í augum flestra er mikilvægt að hafa jákvæðan skólabrag sem ýtir undir jákvæð og uppbyggileg samskipti, eflir sköpunarkraft nemenda og ýtir undir að þeir geri sitt besta í námi. Til að efla skólabraginn setur hver skóli sér ákveðinn ramma til að vinna eftir, s.s. uppeldisstefnu, eineltisáætlun, skólareglur og fleira.