Heimili og skóli
Heimili og skóli – landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum. Foreldrar og forráðamenn barna geta gerst félagar í samtökunum og aðrir geta gerst styrktarfélagar. Samtökin veita ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka og gefa út tímarit og ýmiss konar efni um foreldrastarf.
Samtökin voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga. Þúsundir foreldra eru félagar í samtökunum og með stuðningi þeirra hefur tekist að byggja upp þjónustu við foreldra og félög þeirra.