• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


Fréttir

14
MAí
2013

Prófaþjónusta fyrir nemendur í öðrum skólum

skrifað af Sigrúnu
Í dag koma tveir framhaldsskólanemendur í Grunnskólann í Hofgarði til að taka hér próf. Óvenju margir nemendur úr Öræfum sem stunda nám annars staðar hafa nýtt sér þessa þjónustu þetta vorið og vonum að sjálfsögðu að þeim hafi öllum gengið vel. Flestir voru þeir búnir að vera hér í barnaskóla og gaman að sjá þau aftur í skólanum hér 🙂
Lesa meira →
13
MAí
2013

Skólabúðir að Reykjum

skrifað af Sigrúnu
Þessa viku eru nemendur í sjöunda bekk í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði. Krakkarnir hafa safnað fyrir ferðakostnaði með því að selja rækjur, harðfisk og fleira. Að þessu sinni eru þrír skólar á Reykjum, Grunnskóli Hornafjarðar, Grunnskólinn í Hofgarði og Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi. Aðrir nemendur mæta að sjálfsögðu hér í Hofgarð og hér er lagt kapp á að ljúka yfirferð í ýmsum bókum. Á morgun verður fyrsti sundtíminn á þessu skólaári, þá er ekið með nemendur austur á Höfn og teknir þrír s
Lesa meira →
07
MAí
2013

Skólaferðalag til Vestmannaeyja

skrifað af Pálínu
Í gær, mánudaginn 6. maí fórum við í skólaferðalag til Vestmannaeyja, allir nemendur og kennarar. Matthildur á Hofsnesi var bílstjóri og leiðsögumaður, hún er ættuð úr Eyjum og bjó þar um tíma. Á leiðinni til Landeyjarhafnar stoppuðum við á Þorvaldseyri og fengum þar mjög góðar móttökur á safninu, horfðum á mynd um Eyjafjallajökulsgosið og fengum skemmtilega fræðslu hjá Guðnýju um eldgos. Við fengum frábært veður og gerðum margt skemmtilegt. Siglingin til Eyja var mikil upplifun. Við byrjuðum á
Lesa meira →
04
MAí
2013

Karlakórinn Jökull heldur tónleika í Hofgarði

skrifað af Sigrúnu
Karlakórinn Jökull hélt tónleika í Hofgarði í dag. Jóhann Morávek stjórnaði með skemmtilegum tilþrifum auk þess sem hann spilaði á klarinett, Guðlaug Hestnes lék á píanó og í síðasta hlutanum spilaði Haukur Þorvalds með á harmonikku. Það var gaman að heyra þessar flottu raddir og kórinn er greinilega vel æfður. Efnisskráin var fjölbreytt og skemmtileg, meðal annars var flutt efni sem Gunnlaugur Þröstur samdi sérstaklega fyrir kórinn, einnig frumlegt lag eftir Jóhann kórstjóra með texta eftir Guð
Lesa meira →
02
MAí
2013

Háskólanemi tekur próf í Hofgarði

skrifað af Pálínu
Í dag tók háskólanemi próf hjá okkur en búið var að semja um þetta samstarf milli skólanna nokkru áður. Prófið var sent til okkar rafrænt  og úrlausnir voru síðan skannaðar inn og sendar um hæl í tölvupósti en jafnframt eru þær sendar með Íslandspósti. Af og til höfum við í Hofgarði liðsinnt skólafólki sem er hér statt með próftöku frá öðrum skólum, enda býður tölvutæknin upp á að fólk geti tekið próf á sama tíma hvar sem er og skilað nánast á sama tíma.
Lesa meira →
30
APR
2013

Aprílfréttir

skrifað af Pálínu
Í dag er síðasti dagur aprílmánaðar og í morgun var jörð hvít af snjó en hann hefur tekið upp. Mesti snjór vetrarins hefur verið dag og dag í apríl og í síðustu viku voru búnir til snjókarlar og kerlingar á leikvellinum. Í gær heyrðum við í lóunni við skólann þannig að vorið er komið þrátt fyrir snjó og kulda í þessum mánuði enda var sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn í síðustu viku. Skólastarfið hefur verið hefðbundið en óvenju mikil veikindi hafa herjað á skólafólkið að undanförnu, margar umg
Lesa meira →
« First‹ Previous14151617181920Next ›

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Fréttasafn

  • september 2023 (2)
  • ágúst 2021 (1)
  • mars 2021 (1)
  • janúar 2021 (1)
  • desember 2020 (1)
  • nóvember 2020 (1)
  • september 2020 (2)
  • maí 2020 (1)
  • apríl 2020 (1)
  • febrúar 2020 (1)
  • desember 2019 (1)
  • október 2019 (2)
  • september 2019 (2)
  • mars 2018 (2)
  • október 2017 (1)
  • maí 2017 (1)
  • mars 2017 (1)
  • febrúar 2017 (1)
  • janúar 2017 (1)
  • desember 2016 (1)
  • október 2016 (1)
  • ágúst 2016 (2)
  • maí 2016 (1)
  • mars 2016 (1)
  • febrúar 2016 (1)
  • janúar 2016 (1)
  • nóvember 2015 (1)
  • október 2015 (2)
  • september 2015 (2)
  • apríl 2015 (2)
  • mars 2015 (1)
  • febrúar 2015 (2)
  • janúar 2015 (1)
  • desember 2014 (4)
  • nóvember 2014 (2)
  • október 2014 (4)
  • september 2014 (4)
  • ágúst 2014 (1)
  • maí 2014 (5)
  • apríl 2014 (1)
  • mars 2014 (5)
  • febrúar 2014 (7)
  • janúar 2014 (4)
  • desember 2013 (3)
  • nóvember 2013 (5)
  • október 2013 (5)
  • september 2013 (4)
  • ágúst 2013 (2)
  • maí 2013 (8)
  • apríl 2013 (5)
  • mars 2013 (4)
  • febrúar 2013 (2)
  • janúar 2013 (1)

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is