• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


Fréttir

13
JAN
2015

Vetur konungur

skrifað af Pálínu
Það hefur verið nokkuð vetrarlegt það sem af er nýja árinu en skólastarfið hefur þó gengið hindrunarlaust. Í dag er mikill snjór og mátulega blautur til að velta í snjóbolta, en veðrið er býður ekki upp á langa útivist eins og er. Talsverður vindur og mikið fjúk. Ef það lagast munu trúlega einhver sköpunarverk koma upp á skólalóðinni, kannski hús og jafnvel íbúarnir líka. Byggðin má gjarnan stækka !
Lesa meira →
18
DES
2014

Litlu-jólin og brunavarnir

skrifað af Sigrúnu
Í gær voru litlu-jólin í skólanum. Við lásum um ævintýri Stúfs með krökkunum undanfarna daga, sungum jólalög og hlustuðum á jólasögu, að þessu sinni var lesin Breiðfirsk sjóferðasaga. Svo var jólapósturinn lesinn í sundur og þegar allir höfðu fengið jólakortin sín var skipst á gjöfum; krakkarnir höfðu allir komið með pakka í skólann en að þessu sinni fengu öll börnin líka nýja og glæsilega vettlinga sem Brynja kennari hafið prjónað handa þeim. Síðan komu foreldrarnir í skólann og allir settust v
Lesa meira →
16
DES
2014

Aðventan og skólastarfið

skrifað af Sigrúnu
Aðventustundin í kirkjunni gekk ljómandi vel. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði, bæði í söng, undirleik og upplestri. Breskir vísindamenn hafa í nokkur ár fylgst með breytingum á Virkisárjökli og einn þeirra, Heiko, tók að sér að leika á harmonikku undir söng í kirkjunni. Heiko býr í Skotlandi en er fæddur og uppalinn í Þýskalandi; það er gaman að upplifa hvernig tengingarnar liggja víða því amma prestsins er einmitt frá Þýskalandi líka! Í dag var síðasti heimilisfræðitíminn á þessari önn o
Lesa meira →
12
DES
2014

Stúfur á ferðinni

skrifað af Sigrúnu
Stúfur litli hefur síðustu daga verið á ferðinni með börnunum, hann fer heim með nemendum til skiptis og krakkarnir skrifa svo um ævintýrin sem þeir lenda í saman. Þetta hefur lengi verið fastur liður á aðventu í Grsk. í Hofgarði. Alltaf er Stúfur jafn heppinn, hann á marga góða vini í nemendahópnum og upplifir eitthvað nýtt og skemmtilegt á hverjum degi. Nú styttist í aðventustundina í Hofskirkju, þangað mætir Stúfur að sjálfsögðu og það verður gaman að heyra hvernig Stúfsstundin hljóðar á mánu
Lesa meira →
09
DES
2014

Tvö heimili sambandslaus í Öræfum

skrifað af Pálínu
Skólastarf er hefðbundið í jólamánuðinum í Hofgarði, t.d. voru bakaðar piparkökur í dag og á föstudaginn kl. 16:15 verður aðventuathöfn í Hofskirkju með þátttöku skólans. Jólapróf eru langt komin hjá börnunum en þar fyrir utan eru nokkrir eldri sveitungar okkar sem eru í fjarnámi að taka sín próf hér í skólanum. Þar skiptir sköpum að hafa gott netsamband.  Öræfingar eru orðnir góðu vanir hvað þetta varðar og margir nýta sér netið við nám og próf. Það eru því mikil viðbrigði þegar sambandið dettu
Lesa meira →
18
NóV
2014

Dagur íslenskrar tungu

skrifað af Sigrúnu
Dagur íslenskrar tungu var sunnudaginn 16.nóvember, það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Það var ekki skóladagur og þess vegna var haldið upp á daginn á mánudeginum, í gær. Foreldrum var boðið í skólann til að taka þátt í dagskránni, það er alltaf tilbreyting að fá gesti í skólann og það er góð æfing fyrir nemendur að flytja efni fyrir stærri áheyrendahóp. Að þessu sinni var þemað Reykjavík, það var valið vegna þess að skólahópurinn var nýbúinn að fara í menningarferð þangað. Þegar Pálín
Lesa meira →
« First‹ Previous456789101112Next ›Last »

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Fréttasafn

  • september 2023 (2)
  • ágúst 2021 (1)
  • mars 2021 (1)
  • janúar 2021 (1)
  • desember 2020 (1)
  • nóvember 2020 (1)
  • september 2020 (2)
  • maí 2020 (1)
  • apríl 2020 (1)
  • febrúar 2020 (1)
  • desember 2019 (1)
  • október 2019 (2)
  • september 2019 (2)
  • mars 2018 (2)
  • október 2017 (1)
  • maí 2017 (1)
  • mars 2017 (1)
  • febrúar 2017 (1)
  • janúar 2017 (1)
  • desember 2016 (1)
  • október 2016 (1)
  • ágúst 2016 (2)
  • maí 2016 (1)
  • mars 2016 (1)
  • febrúar 2016 (1)
  • janúar 2016 (1)
  • nóvember 2015 (1)
  • október 2015 (2)
  • september 2015 (2)
  • apríl 2015 (2)
  • mars 2015 (1)
  • febrúar 2015 (2)
  • janúar 2015 (1)
  • desember 2014 (4)
  • nóvember 2014 (2)
  • október 2014 (4)
  • september 2014 (4)
  • ágúst 2014 (1)
  • maí 2014 (5)
  • apríl 2014 (1)
  • mars 2014 (5)
  • febrúar 2014 (7)
  • janúar 2014 (4)
  • desember 2013 (3)
  • nóvember 2013 (5)
  • október 2013 (5)
  • september 2013 (4)
  • ágúst 2013 (2)
  • maí 2013 (8)
  • apríl 2013 (5)
  • mars 2013 (4)
  • febrúar 2013 (2)
  • janúar 2013 (1)

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is