• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


21
OKT
2013

Fjölbreytni á síðustu vikum

skrifað af Pálínu

Þó að oftast sé venjuleg kennsla í skólanum er eitt og annað sem lífgar upp á.

S.l. fimmtudag fór skólahópurinn í fræðslu-og skemmtiferð austur í Nes. Við fengum leyfi til að fara að víkingaþorpinu á Horni, þar var mjög skemmtilegt leiksvæði. Hádegismaturinn var snæddur í Hafnarbúðinni á Höfn og krakkarnir léku sér um stund í bátnum Akurey. Eftir hádegið var farið í fjósið á Seljavöllum og Elín bauð okkur upp á nýbakaðar pönnukökur með ískaldri mjólk.  Á  Miðskeri tók Pálína á móti okkur og sýndi okkur kartöfluflokkun, svín, hænur o.fl. Þá skoðuðum við Bjarnaneskirkju og síðan var ekið upp að Geitafelli sem er einnig mjög skemmtilegur staður að stoppa á. Að lokum var notalegt að slaka á í heitu pottunum í Hoffelli. Alls staðar góð fyrirgreiðsla sem við þökkum fyrir.

Við höfum fengið marga gestanemendur í skólann í þessum mánuði. Ýmist okkar fyrri nemendur sem nú eru í skólum annars staðar en voru hér núna í heimsóknum eða önnur börn sem eru nátengd fjölskyldum þeirra sem að skólanum standa. Það er bara ánægjulegt að kunnug börn taki þátt í skólastarfi okkar þegar vel stendur á er þau koma í sveitina. Það lífgar upp á og eflir félagsleg tengsl.

Í lok síðustu viku fengum við 3 góða gesti frá Höfn sem afhentu 5. bekkingum Nýja testamentið frá Gídeonfélaginu eins og venja hefur verið í áratugi.

 

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is