• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


03
FEB
2014

Þorrablót skólans

skrifað af Sigrúnu

Þorrablót skólans var haldið í gær, á sunnudagskvöldinu. Það átti að vera á föstudagskvöldinu en eins og oft áður í vetur setti veðrið strik í reikninginn, það var ekkert vit í að kalla fólk saman miðað við veðurspá daginn þann. Foreldrar skiptu með sér verkum og sumir komu snemma til að sjóða saltkjöt, kartöflur og rófur, og sneiða niður ljúffengt kjötmeti af ýmsu tagi: hangikjöt, sviðasultu, lundabagga, bringukolla, punga og fleira sem tilheyrir á þorraborðið. Strákarnir stóðu sig vel við að raða borðum, leggja á borð, raða mat á bakka og fleira sem þarf til undirbúnings (að þessu sinni voru bara strákar í undirbúningshópnum). Unnur tók daginn snemma og bakaði flatkökur fyrir samkomuna, hún kom líka með himabakað rúgbrauð. Uppúr klukkan 18 var sest að snæðingi og þegar allir voru borðnir að borða lyst sína var fjöldasöngur; Gissur, Styrmir og Sigrún spiluðu undir á gítar í fyrstu lögunum og Ísak spilaði á píanó í síðasta laginu. Eftir sönginn var farið í spurningakeppni, salnum var skipt upp í nokkur lið. Gissur og Stefán lásu upp spurningar sem þeir höfðu útbúið og liðin spreyttu sig á að svara þeim. Síðan fóru þeir yfir rétt svör og það kom í ljós að íbúahópurinn býr yfir mikilli þekkingu þegar alt er lagt saman! Farið var í leiki og að lokum tók Lalli upp gítarinn og Sigurgeir harmonikkuna og léku fyrir dansi. Það var farið í hringdans, partýpolka, Óla Skans, fingrapolka og fleira þar til hápunktinum var náð í marsi. Þegar hópurinn hafði marserað nægju sína var þessari ljómandi vel heppnuðu samkomu svo slitið. Það var mjög ánægjulegt hve margir gátu tekið þátt í þessu með okkur, það er ómetanlegt fyrir skólann að njóta velvildar sveitunganna.

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is