• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


19
FEB
2014

Endurnærð í skólanum

skrifað af Sigrúnu

Þá er vetrarfríinu lokið og skóli hafinn að nýju. Það var gott að geta safnað upp orku í góðviðri síðustu daga því nú er komin ný lægð með tilheyrandi roki! Það var spáð hvassviðri þegar liði á daginn og ekki von á að það lægði fyrr en á morgun, svo valkostirnir sem við höfðum voru að stytta skóladaginn eða vera í skólanum í nótt! Það hefði verið betra fyrir nemendur að mæta með svefnpoka ef við hefðum ætlað að gista og var því tekin ákvörðun um að stytta þennan skóladag vegna veðurs. – Það er ekki að ástæðulausu að skólinn er styttur í veðri eins og var í dag. Það eru allt of mörg dæmi þess að ferðamenn lendi í vandræðum þegar grjót fýkur í bílana og brýtur rúður og skemmir lakk, það er upplifun sem við viljum ekki að skólabörnin lendi í. Það þýðir ekki að deila við Drottinn um veðrið, sjálf hefði ég gjarnan viljað geta verið í skólanum í dag og fengið ljúffengan hádegismat hjá Unni, en það kemur dagur eftir þennan dag.

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is