• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


17
APR
2015

Skólastjóraheimsókn frá Hollandi

skrifað af Pálínu

Í gær fengum við skemmtilega gesti frá Hollandi. Það voru 15 manns, skólastjórar frá misjafnlega stórum skólum sem eru í ferðalagi að  skoða skóla á Íslandi og njóta þess að sjá hluta af landinu á leiðinni. Þau spjölluðu við okkur í skólastofunni og svo dreifðu þau sér á milli nemenda okkar með verkefni. Það var þannig að á blaði voru litlir textar bæði á hollensku og íslensku og þau fengu framburðarkennslu á íslenska textanum en í staðinn kenndu þau nemendum okkar að segja hollensku orðin. Mjög skemmtilegt. Þau fengu svo kaffi og meðlæti og krakkarnir fluttu tvö tónlistaratriði. Gestirnir voru áhugasamir að fræðast um aðstæður hér og héldu svo áfram að næsta áfangastað, Kirkjubæjarklaustri.

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is