• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


01
OKT
2015

Nú er verið að leita leiða til að þjónusta yngstu börnin.

skrifað af Pálínu

Dagforeldrar í Suðursveit og Öræfum.

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem vilja gerast dagforeldrar í Öræfum eða Suðursveit. Um er að ræða daggæslu í heimahúsi, en heimilt er að rækja starfið í öðru húsnæði eftir samkomulagi og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Dagforeldrar geta verið með 4-5 börn í gæslu í einu og er dvalartími alla virka daga allt að 9 tímar á dag, sveitarfélagið niðurgreiðir til foreldra allt að 8 tíma á dag. Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi. Félagsmálanefnd Hornafjarðar veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni en býður einnig fram stuðning til þess að uppfylla ákvæði laga og reglna um daggæslu í heimahúsum og útvega faglega ráðgjöf við dagforeldrana.

Í dag vantar vistun fyrir þrjú börn í Öræfum og fjögur börn í Suðursveit, öll börnin eru á leikskólaaldri.

Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóra í s. 470-8000 eða í netfangið jonkr@hornafjordur.is

 

 

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is