• Foreldrar
  • Innskráning

logo


  • Forsíða
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Nemendur
  • Stundatafla


11
FEB
2016

Það snjóar og snjóar

skrifað af Pálínu

Það eru ekki ný tíðindi að það snjói á þorra en þetta er með meira móti hjá okkur um þessar mundir og nóg að gera hjá bændum að moka stéttarnar hver hjá sér og heimreiðar. Í gærkvöldi var þjóðveginum lokað í gegnum sveitina vegna þess að snjór hlóðst niður og það var mjög blint að keyra. Þar sem margir voru þó á ferðinni í gær þurfti að opna fjöldahjálparstöð í Hofgarði til að hýsa þá sem ekki komust fyrir á nærliggjandi hótelum og gistihúsum og gistu nálægt 30 erlendir ferðamenn í Hofgarði auk umsjónarmanna úr sveitinni. Gátum við því ekki byrjað skólann alveg eins snemma og venjulega í morgun. Fljótlega komust þó allir af stað þegar búið var að moka vegina enda veður þá orðið bjart og gat skólafólk og ferðamenn komist leiðar sinnar en nú síðdegis moksnjóar aftur. Undir kvöld ætla 3 þingmenn Framsóknarflokksins að hafa fund með heimafólki í Hofgarði, vonandi villist nú enginn á þeirri vegferð.

 

ummæli

Valmynd

  • Leikskólinn Lambhagi
  • Kennsluáætlanir
  • Saga skólans
  • Stefna skólans
  • Sérstaða skólans
  • Starfsáætlun
  • Skólanámskrá
  • Menning og samfélag
  • Skóladagatal
  • Mat á skólastarfi
  • Skólaráð

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða væntanleg
  • Skólasetning Grunnskólans
  • Skólasetning
  • Skóli frá áramótum til páska
  • Breytingar á húsnæði skólans
  • Aðventan
  • Október í covid
  • Haustið í Hofgarði
  • Skólabyrjun
  • (án titils)
  • Vorið er komið
  • Veturinn 2020
  • Dagskráin í desember
  • Haustfrí
  • Haust í skólanum
  • Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund
  • Skólastarfið haustið 2019
  • Vangaveltur nýbúa í Öræfum
  • Fréttir úr Lambhaga
  • Velkomin

Tenglar

  • Hornafjörður
  • Lesvefurinn
  • Skólavefurinn
  • Umferðarvefurinn

 

  • Heimili og skóli
  • Menntagátt
  • Menntamálaráðuneytið
  • Mentor

  

Upplýsingar

Grunnskólinn í Hofgarði
Hofi
785 Öræfum

Sími: 478 1672
hofgardur@hornafjordur.is