Skólastarfið hefur verið með eðlilegum hætti eftir páska. Skólasundið hófst 5.maí og lýkur 22.maí. Sundlaugin er á Höfn og stundum nýtum við ferðirnar og gerum eitthvað fleira í leiðinni. Í síðustu viku fórum við í Haukafell og nutum útivistar þar og borðuðum nesti. Í næstu viku stefnum við aftur að því að gera meira út ferðinni einn daginn sem við förum í skólasund, þá ætlum við að skoða Skógey, koma við í fjósinu í Flatey sem er stærsta fjós landsins og fá okkur ís. Útivistardagur í þjóðgarðinum Skaftafelli verður á morgun og þangað förum við aftur í næstu viku. Inn á milli eru auðvitað hefðbundnir skóladagar með áherslu sem hæfir hverjum aldurshópi: lögð lokahönd á ýmis verkefni í Íslensku og Stærðfræði og öðrum námsgreinum. Eldri nemendur fá líka tónlistarkennslu í hverri viku, þá er spilað á píanó eða gítar eftir því sem hver nemandi hefur valið. Elsti nemandi leikskólans hefur komið reglulega í skólaheimsóknir í allan vetur, en síðustu daga hefur hún komið í lengri lotur til að kynnast betur skólastarfinu. Leikskólastarfið er auðvitað líka með hefðbundnum hætti þessa dagana en fyrst eftir páska voru dagarnir aðeins styttri vegna aukinna þrifa á húsnæði og leikföngum, það voru sérstakar öryggisráðstafanir vegna COVID-19 en sem betur fer komu engin slík tilfelli upp, hvorki í skólanum né leikskólanum. Skólaslit verða föstudaginn 29.maí en síðasti dagur leikskólans fyrir í sumarfrí er 10.júlí.
Pingback: cialis 20mg
Pingback: cialis for men
Pingback: generic viagra
Pingback: how to buy cialis
Pingback: viagra sale vancouver
Pingback: viagra half pill
Pingback: slots for real money on android
Pingback: viagra 100 mg prices
Pingback: cialis c 5
Pingback: 100 mg of viagra
Pingback: cialis generic name
Pingback: buy viagra melbourne
Pingback: amazon viagra tablets
Pingback: order viagra for men