Veðurspá fyrir daginn í dag var slæm og því var það fyrsta verk í morgun að skoða upplýsingar frá sjálfvirku veðurstöðinni í Sandfelli. Þar var vindhraðinn í mestu hviðunum 39 m/s . Á vef Veðurstofunnar kom fram að vindhraðinn á Fagurhólsmýri var 26 m/s, þar fóru mestu vindhviðurnar upp í 35 m/s. Við þetta bætist ofankoma, heima hjá mér (á Fagurhólsmýri) er þunnt snjólag yfir jörðinni þó það sé ein gráða í hita; það er því viðbúið að þessi blauti snjór skapi hálku á veginum.
Tekin var ákvörðun um að gefa frí í skólanum þangað til veðrið gengur niður.