Þá er Góunefndin búin að leysa af hendi alls kyns verkefni í Hofgarði, eins og hin fyrri ár. Það er búið að smyrja læsingar á hurðum, skipta um stíflaða slöngu í uppþvottavélinni og lagfæra ýmislegt fleira. Eins og margir vita þá hefur hagnaður af Góuhófum verið notaður í starfsemi hér í húsinu, eitt árið var keyptur skjávarpi sem nýtist bæði í skólastarfi og ýmsu félagsstarfi, það hefur verið keypt leirtau, húsbúnaður og ýmislegt fleira. Enda var Hofgarður byggður sem skóli og félagsheimili, líklega eru ekki orðin mörg hús á landsvísu sem gegna báðum þessum hlutverkum.