Dagur íslenskrar tungu var sunnudaginn 16.nóvember, það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Það var ekki skóladagur og þess vegna var haldið upp á daginn á mánudeginum, í gær. Foreldrum var boðið í skólann til að taka þátt í dagskránni, það er alltaf tilbreyting að fá gesti í skólann og það er góð æfing fyrir nemendur að flytja efni fyrir stærri áheyrendahóp. Að þessu sinni var þemað Reykjavík, það var valið vegna þess að skólahópurinn var nýbúinn að fara í menningarferð þangað. Þegar Pálína skólastjóri hafði sagt nokkur orð tóku nemendur við, fyrst með upplestri á ljóði eftir Þórarinn Eldjárn, síðan sungu sjöundubekkingarnir annað ljóða hans. Allir nemendur skólans lásu til skiptis, ýmsan fróðleik um höfuðborgina okkar. Þá hófst tónlistardagskrá, nemendur, kennarar og gestir sungu saman nokkur lög. Veitingarnar voru ljúffengar; kaffi, djús, brúnterta og rjómapönnukökur. Að lokum voru sýndar myndir úr skólaferðalaginu og það var gaman að rifja upp þetta vel heppnaða ferðalag. Öldungis ágætur skóladagur!