Laugardaginn 11. apríl kom kór Menntaskólans við Hamrahlíð í Hofgarð og hélt tónleika undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Alveg frábær kór, fágaður og fallegur. Aldrei áður hefur svo fjölmennur flokkur komið með dagskrá til okkar, það eru 83 í kórnum. Á eftir voru kaffiveitingar í boði Ungmennafélags Öræfa.
Vorið er að reyna að lenda hjá okkur en það er alls konar veður þessa dagana, stundum vel bjart en stundum rigning eða snjókoma. En sumarið kemur í næstu viku.