Í gær fengum við skemmtilega gesti frá Hollandi. Það voru 15 manns, skólastjórar frá misjafnlega stórum skólum sem eru í ferðalagi að skoða skóla á Íslandi og njóta þess að sjá hluta af landinu á leiðinni. Þau spjölluðu við okkur í skólastofunni og svo dreifðu þau sér á milli nemenda okkar með verkefni. Það var þannig að á blaði voru litlir textar bæði á hollensku og íslensku og þau fengu framburðarkennslu á íslenska textanum en í staðinn kenndu þau nemendum okkar að segja hollensku orðin. Mjög skemmtilegt. Þau fengu svo kaffi og meðlæti og krakkarnir fluttu tvö tónlistaratriði. Gestirnir voru áhugasamir að fræðast um aðstæður hér og héldu svo áfram að næsta áfangastað, Kirkjubæjarklaustri.