Þá er nú langt liðið á þetta skólaár og hefur veturinn verið einn hinn mildasti sem ég man eftir úr mínu skólastarfi og ekki mikið um hvassviðri. En það er sagt að skjótt skipist veður í lofti og það á vel við núna í maí sem byrjaði afar vel með góðviðri og stundum heitum dögum sem kom sér t.d. vel í útivist í Skaftafelli en nú hefur geisað þriggja daga óveður svo að fella þurfti niður skólahald 3 daga í röð. Ég minnist þess ekki að hafa þurft að aflýsa skóla í maí vegna veðurs, hvað þá í 3 daga. Nú er verið að skipuleggja lokasprettinn fyrir nemendur þetta vorið, sundnámskeið og fleira.