Í dag hafa nemendur spreytt sig á ýmsum verkefnum, líkt og aðra daga. Meðal annars fórum við á netið og spreyttum okkur á spurningum um lönd í Evrópu og Asíu, þetta er ljómandi skemmtileg vefsíða á ensku og þar með er hægt að æfa sig á ensku og landafræði í sama pakkanum! Síðan heitir http://lizardpoint.com/ – reyndar er líka hægt að velja fleira en landafræði þar, en við höfum ekki skoðað þetta til hlítar.
Í morgun fór vindhraðinn í Sandfelli upp fyrir öryggisviðmiðin þannig að skólastarfið byrjaði seinna en vant er. Þegar vindurinn gekk niður fór skólabíllinn af stað og við tók góð vinnulota hér. Allir unnu af kappi og töluvert hefur bæst við í viskubrunninn í dag sem og aðra skóladaga 🙂
Enn og aftur sló Unnur í gegn með kaffihlaðborðinu sínu á Litlu-jólunum. Brauðrétturinn, heita eplakakan, vanilluhringirnir – hægt væri að halda svona áfram og telja upp allar tegundirnar: þetta var allt svo ljúffengt að það bráðnaði í munni 🙂
Þá eru jólaprófin langt komin, nemendur hafa leyst hin ýmsu verkefni með sóma eins og við var að búast. Síðastliðin ár hefur skólinn haft aðventustund í félagi við prestana, einn skóladagurinn hefur þá verið á laugardegi eða sunnudegi í Hofskirkju. Í ár varð að fresta aðventustundinni því veðrið bauð ekki upp á nein ferðalög þann daginn. Í dag var haldin aðventustund í Hofskirkju , krakkarnir tóku virkan þátt með lestri, söng og gítarspili og síðan komu allir í Hofgarð til að njóta veitinga og s
Þegar börnin fóru heim úr skólanum settust kennarar við að skipuleggja skólastarfið næstu daga. Á morgun verður jólaföndur frá 13-15, þá koma foreldrar og/eða aðrir aðstandendur barnanna og taka þátt í því. Bráðum leggur Stúfur af stað í heimsóknaleiðangur sinn og verður áreiðanlega aufúsugestur á heimilum barnanna. Á laugardaginn verður aðventumessa í Hofskirkju kl. 13 þar sem skólabörnin taka virkan þátt og að því loknu verður boðið upp á kaffi í Hofgarði. Að öðru leyti verður skólastarfið að
Þá er þessum skóladegi lokið. Nemendur hafa unnið í námsbókum af ýmsu tagi og auk þess leyst af hendi verkefni í IPAD og fartölvum. Í landafræðitímanum voru nemendur að skoða á Google Earth ýmis lönd og staði sem þeir höfðu áður lært um í bókunum. Það getur verið tilbreyting að leysa stærðfræðidæmi í leikjum, ýmis slík smáforrit eru fáanleg fyrir nýjustu kennslutækin okkar, IPAD. Góða helgi 🙂