Það hefur verið nokkuð vetrarlegt það sem af er nýja árinu en skólastarfið hefur þó gengið hindrunarlaust. Í dag er mikill snjór og mátulega blautur til að velta í snjóbolta, en veðrið er býður ekki upp á langa útivist eins og er. Talsverður vindur og mikið fjúk. Ef það lagast munu trúlega einhver sköpunarverk koma upp á skólalóðinni, kannski hús og jafnvel íbúarnir líka. Byggðin má gjarnan stækka !
Í gær voru litlu-jólin í skólanum. Við lásum um ævintýri Stúfs með krökkunum undanfarna daga, sungum jólalög og hlustuðum á jólasögu, að þessu sinni var lesin Breiðfirsk sjóferðasaga. Svo var jólapósturinn lesinn í sundur og þegar allir höfðu fengið jólakortin sín var skipst á gjöfum; krakkarnir höfðu allir komið með pakka í skólann en að þessu sinni fengu öll börnin líka nýja og glæsilega vettlinga sem Brynja kennari hafið prjónað handa þeim. Síðan komu foreldrarnir í skólann og allir settust v
Aðventustundin í kirkjunni gekk ljómandi vel. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði, bæði í söng, undirleik og upplestri. Breskir vísindamenn hafa í nokkur ár fylgst með breytingum á Virkisárjökli og einn þeirra, Heiko, tók að sér að leika á harmonikku undir söng í kirkjunni. Heiko býr í Skotlandi en er fæddur og uppalinn í Þýskalandi; það er gaman að upplifa hvernig tengingarnar liggja víða því amma prestsins er einmitt frá Þýskalandi líka! Í dag var síðasti heimilisfræðitíminn á þessari önn o
Stúfur litli hefur síðustu daga verið á ferðinni með börnunum, hann fer heim með nemendum til skiptis og krakkarnir skrifa svo um ævintýrin sem þeir lenda í saman. Þetta hefur lengi verið fastur liður á aðventu í Grsk. í Hofgarði. Alltaf er Stúfur jafn heppinn, hann á marga góða vini í nemendahópnum og upplifir eitthvað nýtt og skemmtilegt á hverjum degi. Nú styttist í aðventustundina í Hofskirkju, þangað mætir Stúfur að sjálfsögðu og það verður gaman að heyra hvernig Stúfsstundin hljóðar á mánu
Skólastarf er hefðbundið í jólamánuðinum í Hofgarði, t.d. voru bakaðar piparkökur í dag og á föstudaginn kl. 16:15 verður aðventuathöfn í Hofskirkju með þátttöku skólans. Jólapróf eru langt komin hjá börnunum en þar fyrir utan eru nokkrir eldri sveitungar okkar sem eru í fjarnámi að taka sín próf hér í skólanum. Þar skiptir sköpum að hafa gott netsamband. Öræfingar eru orðnir góðu vanir hvað þetta varðar og margir nýta sér netið við nám og próf. Það eru því mikil viðbrigði þegar sambandið dettu
Dagur íslenskrar tungu var sunnudaginn 16.nóvember, það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Það var ekki skóladagur og þess vegna var haldið upp á daginn á mánudeginum, í gær. Foreldrum var boðið í skólann til að taka þátt í dagskránni, það er alltaf tilbreyting að fá gesti í skólann og það er góð æfing fyrir nemendur að flytja efni fyrir stærri áheyrendahóp. Að þessu sinni var þemað Reykjavík, það var valið vegna þess að skólahópurinn var nýbúinn að fara í menningarferð þangað. Þegar Pálín