Síðastliðinn þriðjudag fór skólinn í vettvangsferð í Svínafell, í fyrsta sinn í margra ára sögu Grsk. í Hofgarði er enginn nemandi þaðan. Við mættum við fjósið á Nýjatúni og Hafdís kynnti okkur fyrir kúnum, þar voru Glóð, Tjalda, Njóla, Kola, Hjálma og fleiri glæsilegar kýr. Við fylgdumst með mjöltunum og litum inn í hlöðuna þar sem mest fór fyrir risastóru fóðurbætissílói; flestar rúllurnar eru geymdar úti þannig að nóg pláss er í hlöðunni. Hafdís fræddi okkur um ýmislegt sem tengist kúabúskapn
Það var gaman að fá óvænta gesti á skólasetninguna á fimmtudeginum: Anna Guðrún Aradóttir og Anna Pedersen eru gamlir nemendur úr okkar skóla og Sigurgeir Thoroddsen hefur sterkar tengingar til okkar líka! Svo var fyrsti kennsludagur á föstudeginum, það er alltaf gaman að hitta krakkana aftur að hausti og hefja vinnuna 🙂
Næstkomandi fimmtudag verður skólasetning og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu daginn eftir, föstudaginn 23. ágúst. Þessa dagana eru kennarar að undirbúa skólastarfið og farnir að hlakka til að hitta nemendurna.
Í morgun var skipulagsvinna fyrir næsta vetur. Kennarar sátu saman yfir stundatöflugerð og einn háskólanemi þreytti próf í skólanum á meðan. Eftir hádegið fóru nemendur í sundtíma á Höfn.
Þegar líður á maímánuð losnar um ýmislegt í fasta skipulaginu og annað kemur í staðinn. Maí er yfirleitt mánuður skólaferðalaga og útistarfs. S.l. nótt gisti skólahópur frá Höfn hér í Hofgarði, 3. bekkur úr Grunnskóla Hornafjarðar en það hefur verið hefð um árabil að 3. bekkjar ferðalagið þeirra sé heimsókn í Öræfin með gistingu eina nótt. Við í Hofgarði erum að ganga frá öllu sem snýr að bóklegri kennslu, ljúka prófum og undirbúa einkunnaafhendingu sem verður á annan í hvítasunnu kl. 17:00. Sun
Nú er vorið loksins að koma! Krakkarnir búnir í handavinnu og myndmennt og farnir út í góða veðrið í frímínútur. Einn framhaldsskólanemi er þó eftir inni og glímir við próf.