Í dag koma tveir framhaldsskólanemendur í Grunnskólann í Hofgarði til að taka hér próf. Óvenju margir nemendur úr Öræfum sem stunda nám annars staðar hafa nýtt sér þessa þjónustu þetta vorið og vonum að sjálfsögðu að þeim hafi öllum gengið vel. Flestir voru þeir búnir að vera hér í barnaskóla og gaman að sjá þau aftur í skólanum hér 🙂
Þessa viku eru nemendur í sjöunda bekk í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði. Krakkarnir hafa safnað fyrir ferðakostnaði með því að selja rækjur, harðfisk og fleira. Að þessu sinni eru þrír skólar á Reykjum, Grunnskóli Hornafjarðar, Grunnskólinn í Hofgarði og Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi. Aðrir nemendur mæta að sjálfsögðu hér í Hofgarð og hér er lagt kapp á að ljúka yfirferð í ýmsum bókum. Á morgun verður fyrsti sundtíminn á þessu skólaári, þá er ekið með nemendur austur á Höfn og teknir þrír s
Í gær, mánudaginn 6. maí fórum við í skólaferðalag til Vestmannaeyja, allir nemendur og kennarar. Matthildur á Hofsnesi var bílstjóri og leiðsögumaður, hún er ættuð úr Eyjum og bjó þar um tíma. Á leiðinni til Landeyjarhafnar stoppuðum við á Þorvaldseyri og fengum þar mjög góðar móttökur á safninu, horfðum á mynd um Eyjafjallajökulsgosið og fengum skemmtilega fræðslu hjá Guðnýju um eldgos. Við fengum frábært veður og gerðum margt skemmtilegt. Siglingin til Eyja var mikil upplifun. Við byrjuðum á
Karlakórinn Jökull hélt tónleika í Hofgarði í dag. Jóhann Morávek stjórnaði með skemmtilegum tilþrifum auk þess sem hann spilaði á klarinett, Guðlaug Hestnes lék á píanó og í síðasta hlutanum spilaði Haukur Þorvalds með á harmonikku. Það var gaman að heyra þessar flottu raddir og kórinn er greinilega vel æfður. Efnisskráin var fjölbreytt og skemmtileg, meðal annars var flutt efni sem Gunnlaugur Þröstur samdi sérstaklega fyrir kórinn, einnig frumlegt lag eftir Jóhann kórstjóra með texta eftir Guð
Í dag tók háskólanemi próf hjá okkur en búið var að semja um þetta samstarf milli skólanna nokkru áður. Prófið var sent til okkar rafrænt og úrlausnir voru síðan skannaðar inn og sendar um hæl í tölvupósti en jafnframt eru þær sendar með Íslandspósti. Af og til höfum við í Hofgarði liðsinnt skólafólki sem er hér statt með próftöku frá öðrum skólum, enda býður tölvutæknin upp á að fólk geti tekið próf á sama tíma hvar sem er og skilað nánast á sama tíma.
Í dag er síðasti dagur aprílmánaðar og í morgun var jörð hvít af snjó en hann hefur tekið upp. Mesti snjór vetrarins hefur verið dag og dag í apríl og í síðustu viku voru búnir til snjókarlar og kerlingar á leikvellinum. Í gær heyrðum við í lóunni við skólann þannig að vorið er komið þrátt fyrir snjó og kulda í þessum mánuði enda var sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn í síðustu viku. Skólastarfið hefur verið hefðbundið en óvenju mikil veikindi hafa herjað á skólafólkið að undanförnu, margar umg