Nú eru nemendur og kennarar í skólastofunum að keppast við hefðbundna bókavinnu. Flestir morgnar byrja með íslensku- eða stærðfræðistarfi og þeir nemendur sem fara í spilatíma fá hlé á bókavinnunni á meðan; í morgun eru tveir nemar búnir að vera í gítartíma.
Í gær fengum við gestafyrirlesara í skólann frá Nothingham, heimabæ Hróa Hattar. Það var Leanne Hughes en hún er í hópi breskra jarðfræðinga sem stunda rannsóknir á Virkisárjökli, þau fylgjast með grunnvatni í grennd við jökulinn og mæla hve mikið jökullinn hopar. Leanne útbýtti myndum af jökulsvæðinu sem nemendur klipptu út og settu upp í þrívídd. Einnig fengu nemendur að prófa hvaða samsetning frosins vatns rispaði yfirborð mest; niðurstaðan var að sandblandaður ís rispaði flötinn mest en hrei
Nemendum í eldri deild stóð til boða að velja göngu í Skaftafelli sem einn skóladag og síðastliðinn fimmtudag mættum við þar um morguninn í stað þess að aka inn að Hofgarði. Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður sá um gönguna og leiddi okkur inn að Morsárlóni í dýrðlegu veðri. Þetta var í kringum 15 kílómetra gangur samtals og við eyddum góðri stund við Morsárlónið. Þetta var afar vel heppnaður skóladagur og gaman að nýta samstarfsmöguleikana við Vatnajökulsþjóðgarð í Skaftafelli; þangað fer skóli
Þriðjudaginn 2.apríl var haldinn íbúafundur í Hofgarði. Þar mættu margir starfsmenn stjórnsýslu sveitarfélagsins til að eiga samtal við íbúa um stöðu og framtíð góðs samfélags í Öræfum: hvernig hægt væri að þróa og styðja við hugmyndir. Það er áskorun að byggja upp sveitirnar, hið stóra landsvæði í þessu sveitarfélagi gefur ýmis tækifæri en því fylgja líka ógnanir. – Á fundinum bar ýmis mál á góma og var auðfundið að fulltrúar stjórnsýslunnar vilja gera sitt besta til að liðsinna íbúum ein
Þessa viku eru nemendur sjöunda bekkjar í heimsókn á Höfn, þeir lögðu af stað með skólabíl snemma á mánudagsmorgninum og mættu í Grunnskóla Hornafjarðar kl. 8 eins og aðrir nemendur þar. Við vonum að þeir eigi ánægjulegar stundir í skólanum þar og hlökkum til að fá þau aftur í skólann hér að loknu páskafríi. Föstudagurinn 22.mars er síðasti kennsludagur fyrir páskafrí, skólastarf hefst aftur miðvikudaginn 3.apríl.
Árshátíð skólans var haldin 15.mars 2013, síðastliðið föstudagskvöld, hún hófst kl.19:30. Dagskráin var eftirfarandi: Setning, Þrymskviða, píanóleikur, Geiturnar þrjár, Roy Rogers, læknaþáttur, leikþáttur um ferðamenn, pabbabrandarar, Jón Spæjó og Gleymni maðurinn. Á milli atriða lásu nemendur brandara. Að lokum komu allir nemendur fram á svið og fluttu tónlistaratriði, þar voru sungnir kunnuglegir textar Jónasar Árnasonar og nemendur önnuðust einnig undirleik á píanó og gítar. Góð mæting var á